KEA úthlutar styrkjum
HSÞ var einn af þeim aðilum sem fékk styrk frá KEA að þessu sinni. Styrkurinn er til kaupa á kids athletic tösku en í henni er búnaður sem notaður er í nýu fræðslukerfi alþjóða frjálsíþróttasambandsins.
Sjá umfjöllun tekin af heimasíðu Umfí.
Kids Athletics er fyrsta stig af fimm í nýju fræðslukerfi Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, IAAF, fyrir þjálfara og FRÍ hefur tekið upp á sína arma og heitir á ensku Coaches Education Cerfification System (CECS). Fyrsta stigið er einkum ætlað þjálfurum barna og unglinga 12 ára og yngri. Næsta stig er ætlað félagsþjálfurum en hin síðari eru sérhæfðari og ætluð þeim sem lengra eru komin.
Fyrsta stigið, sem kallast Kids Athletics eða Krakkafrjálsar, byggir á blöndu íþrótta við leiki og miðar að því að gefa öllum þátttakendum að reyna sig og vera með, samhliða sem þau fá góða þjálfun. Það er m.a. gert með því að kröfur til þátttakenda eru lagaðar að getu hvers og eins.
Þátttakendum er skipað í hópa sem keppa sín í milli, ein liðsmenn þurfa líka að leggja sig fram fyrir sitt lið þar sem frammistaða allra telur með. Þetta er því e.k. sambland af einstaklings- og liðakeppni sem gerir þátttöku áhugaverða og skemmtilega fyrir hvern og einn. Samhliða er lögð áhersla á að styrkja félagsleg tengsl á milli barnanna, þar sem börnin sjálf geta tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd keppninnar og æfinga.
Aðrir styrkþegar úr þingeyjarsýslu voru eftirtaldir:
Þorsteinn Ingvarsson, frjálsar íþróttir.
Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir.
Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir.
Magni Grenivík,Til að koma upp fótboltavelli.
Völsungur á Húsavík,Til að efla forvarnir meðal ungra íþróttaiðkenda.
Elsa B Skúladóttir Til skíðaþjálfunar fatlaðra.
ÚÁT ungmenna hús á Húsavík. Til að standa fyrir menningarviðburðum.
Völsungur á Húsavík,Til að efla forvarnir meðal ungra íþróttaiðkenda.
Elsa B Skúladóttir Til skíðaþjálfunar fatlaðra.
ÚÁT ungmenna hús á Húsavík. Til að standa fyrir menningarviðburðum.
Þingeyskur sagnagarður - Til útgáfu á þingeysku sagnakveri.
Kristín María Hreinsdóttir - Vegna viðhalds á Ljósavatnskirkju.
Kristín María Hreinsdóttir - Vegna viðhalds á Ljósavatnskirkju.
Hermann R. Herbertsson og Jón Aðalsteinn Hermannsson, Til að gefa út Fnjóskdælasögu.
Fræðafélag um forystufé - Til uppbyggingar fræðaseturs um forystufé.
Styrktaraðilar


Leit


