TIL HAMINGJU - Völsungsstelpur í meistaraflokki knattspyrnu!
Um síðast liðna helgi var 67. ársþing KSÍ haldið á Hilton Reykjavík Nordica. Meistaraflokkslið kvenna hjá Völsungi fékk verðlaun fyrir háttvísi, en á síðast liðnu keppnistímabili fékk liðið aðeins eitt gult spjald og ekkert rautt. Greinilegt er að háttvísi og árangur getur vel farið saman en lið Völsungs endaði í þriðja sæti riðilsins.
Á mynd sést Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, veita Kjartani Páli Þórarinssyni, framkvæmdarstjóra Völsungs, viðurkenninguna.
Knattspyrnumaður HSÞ 2011, Hafþór Mar Aðalgeirsson, framlengdi samning sinn við Völsung í gær, ásamt þeim Arnþóri Hermannssyni og Hrannari Birni Steingrímssyni, en þetta eru þrír af efnilegustu leikmönnum Völsunga í dag. Allir skrifuðu þeir undir samning til ársloka 2013. Þessir unglingspiltar eiga samanlagt 137 mótsleiki fyrir Völsung að baki. Þar vegur þáttur Hrannars mest en hann hefur spilað 71 af þeim. Ánægjulegt er fyrir félagið að piltarnir hafi skrifað undir samninga nú, því óðum styttist í Íslandsmót. Völsungur tekur nú þátt í Lengjubikarnum sem er í fullum gangi og mætir þar næst Fjarðabyggð á sunnudaginn kl.19.30 í Boganum á Akureyri.
,,Eftir samtal við Dragan þjálfara leist mér betur og betur á það sem hann hafði fram að færa og ég ákvað því að framlengja minn samning. Maður er spenntur fyrir sumrinu og við ætlum okkur að gera betur en síðasta sumar, það er alveg á hreinu" sagði Hrannar Björn um undirskriftina en hann hefur undanfarið borið fyrirliðabandið hjá liðinu.
Fréttin um heimsókn landsliðsþjálfara í knattspyrnu til Þórshafnar var mátulega komin á vefinn þegar þetta birtist á heimasíðu Umf. Langnesinga:
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur frestað heimsókn sinni hingað til Þórshafnar sem fyrirhuguð var á morgun, miðvikudaginn 25. maí. Ástæðan er óvissa um flug og færð en Ólafur býr nú landsliðið af kappi undir landsleik Íslands og Danmerkur og mun kalla liðið saman til æfinga á næstu dögum. Fræðsludeild KSÍ og Ólafur hyggjast engu að síður bæta okkur skaðann með veglegri heimsókn síðar.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, ætlar að heimsækja UMFL á miðvikudaginn 25. maí og afhenda DVD diskinn Tækniskóli KSÍ.
Allir krakkar 16 ára og yngri geta komið í íþróttahúsið kl. 11.00, eða strax að loknum tiltektardegi í grunnskólanum, og hitt Ólaf, tekið æfingu með landsliðsþjálfaranum og fengið diskinn. "Tækniskóli KSÍ" er DVD diskur sem KSÍ gefur út í 20.000 eintökum og er færður öllum börnum og unglingum að gjöf sem æfa knattspyrnu og eru 16 ára og yngri. Markmiðið með disknum er að efla knatttækni hjá börnum og unglingum, hvetja þau til aukaæfinga, jákvæðrar hreyfingar og vekja athygli á heilbrigðum fyrirmyndum í A-landsliði karla og kvenna og í U-21 árs landsliði karla.
Dregið var í Valitor-bikarnum núna rétt í þessu. Eftir að Völsungar slógu út Tindastól/Hvöt nú á sunnudaginn var ljóst að áfram yrði haldið í 32-liða úrslitin sem spiluð verða 25. og 26.maí. Dregið var í höfuðstöðvum KSÍ og var Völsungur eitt af fimm liðum úr 2.deild í pottinum. Völsungur fer í heimsókn í Kópavoginn og mætir þar Íslandsmeisturum Breiðabliks. Stórt lið og virkilega skemmtileg viðureign að fá. Frá þessu segir á heimasíðu Völsungs.
Á heimasíðu UMFL kemur fram að hinir nafntoguðu knattspyrnutvíburar frá Akranesi, Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir, verða staddir á Þórshöfn í dag, föstudaginn 1. apríl. Þeir bræður hafa víða gert garðinn frægan, bæði á knattspyrnuvöllum víða um veröld en einnig í viðskiptalífinu hérlendis síðustu ár. Þeir hafa fallist á að vera með unga Langnesinga á knattspyrnuæfingu í dag. Æfingin er opin öllum krökkum, bæði stelpum og strákum, á aldrinum 8-16 ára. Á æfingunni ætla tvíburnarnir að fara í undirstöðuatriði knattspyrnuíþróttarinnar, sýna listir sínar og segja hispurslaust frá lífi atvinnumannsins. Enginn sannur ungmennafélagi né nokkur áhugamaður um knattspyrnu ætti að láta þetta einstæða tækifæri fram hjá sér fara. Æfingin hefst kl. 17.00 og stendur til 18.30. Að lokinni æfingunni gefst fullorðnum kostur á að setjast niður með tvíburunum yfir kaffibolla í íþróttamiðstöðinni og ræða hvaðeina sem þeim liggur á hjarta, hvortheldur sem það er knattspyrna eða framtíðaráætlanir tvíburanna í byggingariðnaði. www.123.is/umfl
Hafrún Olgeirsdóttir gekk í raðir Völsunga í síðustu viku eftir ársdvöl hjá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur þar sem hún lék með bæði með meistaraflokki og 2. flokki félagsins. Þetta eru ánægjuleg tíðindi því ekki þarf að orðlengja það hve mikill liðstyrkur Hafrún er fyrir hið unga lið Völsungs í kvennaboltanum. Myndin sýnir Hafrúnu í leik með Völsungi sumarið 2009. Fréttin fengin af heimasíðu Völsungs
Á knattspyrnuvef Völsungs; volsungur.123.is kemur fram að 16 ára gamall leikmaður Völsungs, Hafþór Mar Aðalgeirsson hefur verið valinn í hóp U17 karla er tekur þátt í milliriðli EM en riðillinn verður leikinn í Ungverjalandi. Mótherjar Íslendinga í riðlinum eru: Rúmenía, Ungverjaland og Rússland. Fyrsti leikurinn er gegn Rúmenum 24. mars, við heimamenn verður leikið 26. mars og lokaleikurinn í riðlinum er gegn Rússum, þriðjudaginn 29. mars. Efsta þjóðin í riðlinum tryggir sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Serbíu.
65. ársþing KSÍ var haldið á laugardaginn en það fór fram að þessu sinni á Hilton Nordica Hótel. Fulltrúar HSÞ voru þeir Sveinn Aðalsteinsson, Völsungi og Þorsteinn Þormóðsson, Magna á Grenivík. Engin átakamál lágu fyrir þinginu en reikningarnir sýndu að rekstur Knattspyrnusambandsins gengur vel. Geir Þorsteinsson var endurkjörinn formaður KSÍ en hann var einn í kjöri, og stjórn sambandsins var öll endurkjörin.
Héraðsmót í knattspyrnu 12 ára og yngri á vegopnunarhátíðinni Núna fer ég norður!
Héraðsmót HSÞ í knattspyrnu 12 ára og yngri innanhúss verður haldið á Þórshöfn á Langanesi sunnudaginn 7. nóvember 2010.
Þetta mót er nú tekið upp aftur eftir áralangt hlé.
Keppt verður í 5. flokki, 6. flokki og 7. flokki í blönduðum liðum. Leyfilegt er að keppa upp fyrir sig.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi þriðjudaginn 26. október á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 893-5836. Þá skal einnig tilkynnt hvort liðin vilja gistingu.
Þátttökugjald er 1.500 krónur á keppanda. Innifalið í því er gisting í skólahúsnæði, diskótek á laugardagskvöldi, mótsgjald og grill eftir mót. Þátttökugjaldið greiðist í síðasta lagi við upphaf móts.
.
Eins og sjá má er gert ráð fyrir að liðin geti komið á föstudegi eða laugardegi til Þórshafnar þó mótið sé aðeins á sunnudegi.
Um þessa helgi verður haldin vegopnunarhátíðin Núna fer ég norður! á Þórshöfn og ýmislegt um að vera. Síðdegis á föstudag verður klippt á borða á Hófaskarðsvegi þar sem allir eru velkomnir, auk konukvölds og dansleiks á Eyrinni um kvöldið. Á laugardegi verður markaðsdagur í íþróttamiðstöðinni, tónleikar, áðurnefnt diskótek og fleira.