Forsíða
Fréttir
Knattspyrna
Haffi til Ungverjalands með U17
Fréttir
Knattspyrna
Haffi til Ungverjalands með U17
Haffi til Ungverjalands með U17
Á knattspyrnuvef Völsungs; volsungur.123.is kemur fram að 16 ára gamall leikmaður Völsungs, Hafþór Mar Aðalgeirsson hefur verið valinn í hóp U17 karla er tekur þátt í milliriðli EM en riðillinn verður leikinn í Ungverjalandi. Mótherjar Íslendinga í riðlinum eru: Rúmenía, Ungverjaland og Rússland. Fyrsti leikurinn er gegn Rúmenum 24. mars, við heimamenn verður leikið 26. mars og lokaleikurinn í riðlinum er gegn Rússum, þriðjudaginn 29. mars. Efsta þjóðin í riðlinum tryggir sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Serbíu.
Okkar maður, Hafþór Mar Aðalgeirsson, hefur æft og spilað fyrir liðið að undanförnu. Við óskum Haffa innilega til hamingju með þennan árangur og vonandi heldur hann áfram að láta ljós sitt skína. Haffi hefur aðeins spilað örfáa leiki með Völsungi í vetur sem skýrist af stanslausum æfingarhelgum með landsliðinu. Við erum gríðar stoltir af Haffa og vonandi nýtir hann tækifærið sem allra best.
http://volsungur.123.is/
Styrktaraðilar


Leit


