Fréttir
Knattspyrna
Arnar og Bjarki á Þórshöfn
Arnar og Bjarki á Þórshöfn
Á heimasíðu UMFL kemur fram að hinir nafntoguðu knattspyrnutvíburar frá Akranesi, Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir, verða staddir á Þórshöfn í dag, föstudaginn 1. apríl. Þeir bræður hafa víða gert garðinn frægan, bæði á knattspyrnuvöllum víða um veröld en einnig í viðskiptalífinu hérlendis síðustu ár. Þeir hafa fallist á að vera með unga Langnesinga á knattspyrnuæfingu í dag. Æfingin er opin öllum krökkum, bæði stelpum og strákum, á aldrinum 8-16 ára. Á æfingunni ætla tvíburnarnir að fara í undirstöðuatriði knattspyrnuíþróttarinnar, sýna listir sínar og segja hispurslaust frá lífi atvinnumannsins.
Enginn sannur ungmennafélagi né nokkur áhugamaður um knattspyrnu ætti að láta þetta einstæða tækifæri fram hjá sér fara. Æfingin hefst kl. 17.00 og stendur til 18.30.
Að lokinni æfingunni gefst fullorðnum kostur á að setjast niður með tvíburunum yfir kaffibolla í íþróttamiðstöðinni og ræða hvaðeina sem þeim liggur á hjarta, hvortheldur sem það er knattspyrna eða framtíðaráætlanir tvíburanna í byggingariðnaði.
www.123.is/umfl




