Forsíða
Fréttir
Knattspyrna
Völsungur fékk Blika í bikar
Fréttir
Knattspyrna
Völsungur fékk Blika í bikar
Völsungur fékk Blika í bikar
Dregið var í Valitor-bikarnum núna rétt í þessu. Eftir að Völsungar slógu út Tindastól/Hvöt nú á sunnudaginn var ljóst að áfram yrði haldið í 32-liða úrslitin sem spiluð verða 25. og 26.maí. Dregið var í höfuðstöðvum KSÍ og var Völsungur eitt af fimm liðum úr 2.deild í pottinum. Völsungur fer í heimsókn í Kópavoginn og mætir þar Íslandsmeisturum Breiðabliks. Stórt lið og virkilega skemmtileg viðureign að fá.
Frá þessu segir á heimasíðu Völsungs.
Styrktaraðilar


Leit


