Fréttir
Knattspyrna
UMFL fær heimsókn
UMFL fær heimsókn
Ólafur Jóhannesson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, ætlar að heimsækja UMFL á miðvikudaginn 25. maí og afhenda DVD diskinn Tækniskóli KSÍ.
Allir krakkar 16 ára og yngri geta komið í íþróttahúsið kl. 11.00, eða strax að loknum tiltektardegi í grunnskólanum, og hitt Ólaf, tekið æfingu með landsliðsþjálfaranum og fengið diskinn.
"Tækniskóli KSÍ" er DVD diskur sem KSÍ gefur út í 20.000 eintökum og er færður öllum börnum og unglingum að gjöf sem æfa knattspyrnu og eru 16 ára og yngri. Markmiðið með disknum er að efla knatttækni hjá börnum og unglingum, hvetja þau til aukaæfinga, jákvæðrar hreyfingar og vekja athygli á heilbrigðum fyrirmyndum í A-landsliði karla og kvenna og í U-21 árs landsliði karla.
Nánar má lesa um átakið á heimasíðu KSÍ.
Frétt fengin af heimasíðu UMFL




