Jakob Sævar Sigurðssonvann nokkuð öruggan sigur á héraðsmóti HSÞ í skák sem fram fór í Litlulaugaskóla í Reykjadal í síðustu viku. Jakob fékk 7,5 vinninga af 8 mögulegum. Rúnar Ísleifsson og Smári Sigurðsson urðu jafnir að vinningum í 2-3 sæti með 6,5 vinninga hvor, en Rúnar hreppti annað sætið á stigum.
Snorri Hallgrímsson og Bjarni Jón Kristjánsson urðu Þingeyjarsýslumeistarar í skólaskák í gær, en sýslumótið fór fram í Litlulaugaskóla í Reykjadal. Snorri Hallgrímsson, Borgarhólsskóla, vann eldri flokkinn með 6,5 vinningum af 7 mögulegum. Hlynur Snær Viðarsson, Borgarhólsskóla, varð í öðru sæti og Tryggvi Snær Hlinason Stórutjarnaskóla varð í þriðja sæti. Bjarni Jón Kristjánsson, Litlulaugaskóla, stóð uppi sem sigurvegari í yngri flokki með 6 vinninga af 7 mögulegum. Jakub Piotr Statkiewicz, Litlulaugaskóla, varð í öðru sæti og Ari Rúnar Gunnarsson, Reykjahlíðarskóla, varð þriðji.
Hið árlega Héraðsmót HSÞ í skák - fullorðinsflokkur - verður haldið í Litlulaugaskóla í Reykjadal föstudagskvöldið 20 apríl nk. og hefst það kl 20:00 stundvíslega.
Börn og unglingar 16 ára og yngri geta þó verið með, en engin verðlaun verða veitt í þeim aldursflokki. (ATH - mótið fyrir 16 ára og yngri verður haldið í maí)
Tefldar verða 7 umferðir og tímamörkin eru 10 mín + 5 sek á leik. Þátttökugjald er 500,- kr.
Tekið er við skráningum í mótið hjá Hermanni í síma 4643187 eða 8213187.
Einnig má senda tölvupóst á Hermann;
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Mánudaginn 26 mars kl 16:00 - 17:50 verður Barna og unglingameistaramót skákfélagins Goðans í skák haldið í Framsýnarsalnum Garðarsbraut 26 á Húsavík. Tefldar verða 5-7 umferðir (monrad-kerfi) með 7-10 mín umhugsunartíma á mann.
Skráning í mótið fer fram hjá Hermanni, formanni skákfélagsins, í síma 4643187 eða 8213187.
Einnig hægt að senda póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Skráningu líkur kl 15:55 á mótsdegi.
Þátttökugjald er 500,- kr. á keppanda, sem greiðist á mótsstað. Ef fleiri en tvö systkini keppa er frítt fyrir þau.
Framsýnarmótið í skák 2011 hefst í kvöld í fundarsal stéttarfélagsins Framsýnar að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Það er skákfélagið Goðinn í Þingeyjarsýslu og Framsýn-stéttarfélag, sem sjá um mótshaldið. Mótið er öllum áhugasömum opið og er ekkert þátttökugjald. Sjá nánar um skráningarfyrirkomulag hér neðar. Allar nánari upplýsingar um Framsýnarskákmótið verða aðgengilegar á heimasíðu skákfélagins Goðans, ásamt skráningu, stöðu, skákir og svo loka-úrslit, verða birt á http://www.godinn.blog.is/ og á http://www.framsyn.is/
Útiskákmót Skákfélagsins Goðans fór fram í Vaglaskógi á föstudagskvöldið. Teflt var á pallinum við verslunina í skóginum. Engin þátttökugjöld voru á mótinu og engin verðlaun voru fyrirhuguð. Þetta kemur fram á heimasíðu Goðans. Rúnar Sigurpálsson (Mátar) varð efstur á Rúnar fékk 7 vinninga af 8 mögulegum og tapaði aðeins einni skák, fyrir Jóni Kr. Þorgeirssyni, sem varð í öðru sæti með 6,5 vinninga. Jakob Sævar Sigurðsson, Smári Sigurðsson og Hlynur Snær Viðarsson urðu jafnir í 3.-5. sæti með 5 vinninga hver. Alvarlegt tölvuvandamál kom upp eftir þrjá umferðir sem tafði mótið mikið og var því mótið stytt niður í 8 umferðir, en til stóð að tefla 11 umferðir. Veðrið var þurrt og gott í Vaglaskógi, en ansi kalt var orðið í síðustu þremur umferðunum. Þó fraus ekki. Úrslit:
Héraðsmót HSÞ í skák í flokki 16 ára og yngri fór fram á Laugum í dag. Sjö keppendur mættu til leiks. þrír í eldri flokki og fjórir í yngri flokki. Valur Heiðar Einarsson gerði sér lítið fyrir og vann allar sínar skákir, sex að tölu og hreppti þar með titilinn héraðsmeistari HSÞ í skák 2011 16 ára og yngri. Hlynur Snær Viðarsson varð í öðru sæti með 5 vinninga og Snorri Hallgrímsson varð þriðji með 4 vinninga. Snorri Már Vagnsson vann í flokki 13 ára og yngri með 2,5 vinninga. Eyþór Kári Ingólfsson varð í öðru sæti með 1,5 vinning og Bjarni Jón Kristjánsson varð í þriðja sæti líka með 1,5 vinning. Eyþór og Bjarni háðu auka keppni um annað sætið. Þeir unnu hvor sína hraðskákina og var þá tefldur bráðabani þar sem hvítur hafði 6 mín en svartur var með 5 mín og svörtum dugði jafntefli til sigurs. Eyþór, sem var með hvítt, vann kónginn af Bjarna og þar með skákina og hreppti því annað sætið.
Rúnar Ísleifsson varð Páskameistari Goðans 2011, en páskaskákmót félagsins var haldið í gær, á laugardaginn fyrir páska á Húsavík. Rúnar fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Sigurður Ægisson varð reyndar efstur að vinningum með 6,5 vinninga, en þar sem hann er utanfélagsmaður varð hann að láta sér páskaegg duga sem verðlaun. Rúnar og Sigurður gerðu jafntefli í innbyrðis viðureign sinni, en Hermann Aðalsteinsson krækti í hálfan vinning gegn Rúnari á meðan Sigurður vann aðrar skákir. Hermann varð svo í þriðja sæti með 4,5 vinninga. Hlynur Snær Viðarsson varð efstur í yngri flokki með 2,5 vinninga. Á myndinni eru strákarnir í flokki 16 ára og yngri með verðlaunin sín, sem auðvitað voru páskaegg; Snorri Hallgrímsson, Valur Heiðar Einarsson og Hlynur Snær Viðarsson. Hægt er að skoða einstök úrslit á heimasíðu Goðans.
Aðalfundur skákfélagsins Goðans var haldinn á mánudagskvöldið á Húsavík. Tíu félagsmenn sátu fundinn. Sighvatur Karlsson var endurkjörinn í stjórn sem ritari en fyrir eru í stjórn, Hermann Aðalsteinsson formaður og Sigurbjörn Ásmundsson gjaldkeri. Smári Sigurðsson var kjörinn fyrsti varamaður í stjórn í stað Ketils Tryggvasonar. Fram kom í máli formanns á fundinum að árið 2010 hefði verið félaginu afar gjöfult. Mikil fjölgun félagsmanna hefði orðið á árinu og Goðinn væri
Smári Sigurðsson varð í gærkvöldi Héraðsmeistari HSÞ í skák 2011. Smári fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Smári gerði jafntefli við Pétur Gíslason og Benedikt Þór Jóhannsson. Aðrar skákir vann Smári. Rúnar Ísleifsson varð í öðru sæti með 5,5 vinninga og Pétur Gíslason varð í þriðja sæti með 5 vinninga. Tefldar voru 7 umferðir eftir monrad-kerfi og var umhugsunartíminn 10 mín + 5 sek/á leik. Góð frammistaða Snorra Hallgrímssonar og Benedikts Þór Jóhannssonar vakti athygli og voru þeir að vinna marga góða sigra gegn stigahærri andstæðingum á mótinu. Lokastaðan:
Héraðsmót HSÞ í skák fyrir 17 ára og eldri, verður haldið nk. mánudagskvöld kl 20:00 í Litlulaugaskóla í Reykjadal. Tefldar verða 7 - 9 umferðir eftir monrad-kerfi og fer umferðafjöldinn eftir keppendafjölda. Tímamörk verða 10 mín. á mann með 5 sek. viðbótartíma á hvern leik. (10 mín +5 sek/leik). Mótið er öllu skákáhugafólki opið en aðeins félagar í aðildarfélögum HSÞ geta unnið til verðlauna. Sama gildir um þátttakendur yngri en 17 ára, þeim er heimil þátttaka en vinna ekki til verðlauna. Héraðsmót 16 ára og yngri verður auglýst síðar. Skráning í mótið fer fram á heimasíðu Goðans. Einnig er hægt að skrá sig til leiks hjá Hermanni í síma 464-3187 eða 821-3187. Þátttökugjald er krónur 500. Núverandi héraðsmeistari HSÞ í skák er Rúnar Ísleifsson, Skákfélaginu Goðanum.
Í kvöld hefst seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga þegar 5. umferð verður tefld kl 20:00 í Rimaskóla í Grafarvogi. A-lið Goðans á í hörku baráttu um efstu tvö sætin í 3. deild og stefnan er að sjálfsögðu tekin á sigur í deildinni. A-liðið mætir B-liði nágranna okkar í SA í 5. umferð, en erfitt er að segja nákvæmlega um hverjir verða andstæðingarnir í 6. og 7. umferð sem tefldar verða á laugardaginn. B og C-lið Goðans tefla í 4. deildinni. B-liðið á möguleika á því að ná í þriðja sætið í deildinni, sem gefur sæti í 3. deild að ári, vinnist allar viðureignirnar sem eftir eru og úrslit í öðrum viðureignum verði okkur hagstæð. C-liðið verður líklega ekki í toppbaráttunni, en stefnir að sjálfsögðu á að ná góðum árangri. Þetta og fleira á heimasíðuSkákfélagsins Goðans.
Jakob Sævar Sigurðsson sigraði á Skákþingi Goðans sem haldið var um helgina, en hann lagði Hermann Aðalsteinsson í lokaumferðinni. Smári Sigurðsson varð í öðru stæti eftir sigur á Sigurbirni Ásmundssyni og Heimir Bessason varð þriðji með 5 vinninga. Snorri Hallgrímsson varð efstur í flokki 16 ára og yngri með 3 vinninga, Hlynur Snær Viðarsson varð annar með þrjá vinninga og Valur Heiðar Einarsson varð þriðji með tvo vinninga. Þátttakendur voru ellefu og má sjá nánari úrslit á heimasíðu Goðans.
Skákþing Goðans 2011 fer fram helgina 18. -20. febrúar nk. í sal Framsýnar-stéttarfélags að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Mótið er öllum opið. Tefldar verða 7 umferðir eftir monrad-kerfi, 4 atskákir og 3 kappskákir. Mótið verður reiknað til íslenskra og fide skákstiga. Verðlaun verða með hefðbundnu sniði. 3 efstu í fullorðins flokki og 3 efstu í 16 ára og yngri. Farandbikar fyrir sigurvegarann. Þátttökugjald er 2.000 krónur fyrir fullorna og 1.000 krónur fyrir 16 ára og yngri. Skráning í mótið er á heimasíðu Goðans á sérstöku skráningarformi. Einnig er hægt að skrá sig til leiks í síma 464 3187 eða 821 3187.
Alltaf er eitthvað skemmtilegt af frétta af Skákfélaginu Goðanum sem starfar af miklum þrótti. Milli jóla og nýárs hélt Goðinn hraðskákmót í Framsýnarsalnum á Húsavík. Metþátttaka var í mótinu, alls 18 keppendur og er það fjölmennasta innanfélagsmót Goðans frá stofnun félagsins árið 2005. Það var Rúnar Ísleifsson stóð uppi sem sigurvegari, fékk 9 vinninga af 11 mögulegum. Í öðru sæti var' Jakob Sævar Sigurðsson og Benedikt Þór Jóhannsson í því þriðja. Hlynur Snær Viðarsson varð efstur í flokki 16 ára og yngri og Valur Heiðar Einarsson í öðru sæti. Þetta var í fyrsta skipti sem Rúnar vinnur hraðskákmót Goðans, en hann er núverandi skákmeistari félagsins frá því í febrúar sl. Frá þessu og fleiru er greint á líflegri heimasíðu Goðans, www.godinn.blog.is
Héraðsmót HSÞ í skák 16 ára og yngri verður haldið á Húsavík fimmtudaginn 1. maí nk. Keppni hefst kl. 13:00 og lýkur um kl. 16:00. Mótið fer fram í Borgarhósskóla.