Af Skákfélaginu Goðanum
Alltaf er eitthvað skemmtilegt af frétta af Skákfélaginu Goðanum sem starfar af miklum þrótti.
Milli jóla og nýárs hélt Goðinn hraðskákmót í Framsýnarsalnum á Húsavík. Metþátttaka var í mótinu, alls 18 keppendur og er það fjölmennasta innanfélagsmót Goðans frá stofnun félagsins árið 2005. Það var Rúnar Ísleifsson stóð uppi sem sigurvegari, fékk 9 vinninga af 11 mögulegum. Í öðru sæti var' Jakob Sævar Sigurðsson og Benedikt Þór Jóhannsson í því þriðja.
Hlynur Snær Viðarsson varð efstur í flokki 16 ára og yngri og Valur Heiðar Einarsson í öðru sæti.
Þetta var í fyrsta skipti sem Rúnar vinnur hraðskákmót Goðans, en hann er núverandi skákmeistari félagsins frá því í febrúar sl.
Frá þessu og fleiru er greint á líflegri heimasíðu Goðans, www.godinn.blog.is




