Íslandsmót skákfélaga, seinni hluti
Í kvöld hefst seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga þegar 5. umferð verður tefld kl 20:00 í Rimaskóla í Grafarvogi. A-lið Goðans á í hörku baráttu um efstu tvö sætin í 3. deild og stefnan er að sjálfsögðu tekin á sigur í deildinni. A-liðið mætir B-liði nágranna okkar í SA í 5. umferð, en erfitt er að segja nákvæmlega um hverjir verða andstæðingarnir í 6. og 7. umferð sem tefldar verða á laugardaginn.
B og C-lið Goðans tefla í 4. deildinni. B-liðið á möguleika á því að ná í þriðja sætið í deildinni, sem gefur sæti í 3. deild að ári, vinnist allar viðureignirnar sem eftir eru og úrslit í öðrum viðureignum verði okkur hagstæð. C-liðið verður líklega ekki í toppbaráttunni, en stefnir að sjálfsögðu á að ná góðum árangri.
Þetta og fleira á heimasíðu Skákfélagsins Goðans.




