Héraðsmót HSÞ í skák
Héraðsmót HSÞ í skák fyrir 17 ára og eldri, verður haldið nk. mánudagskvöld kl 20:00 í Litlulaugaskóla í Reykjadal.
Tefldar verða 7 - 9 umferðir eftir monrad-kerfi og fer umferðafjöldinn eftir keppendafjölda.
Tímamörk verða 10 mín. á mann með 5 sek. viðbótartíma á hvern leik. (10 mín +5 sek/leik).
Mótið er öllu skákáhugafólki opið en aðeins félagar í aðildarfélögum HSÞ geta unnið til verðlauna. Sama gildir um þátttakendur yngri en 17 ára, þeim er heimil þátttaka en vinna ekki til verðlauna. Héraðsmót 16 ára og yngri verður auglýst síðar.
Skráning í mótið fer fram á heimasíðu Goðans. Einnig er hægt að skrá sig til leiks hjá Hermanni í síma 464-3187 eða 821-3187. Þátttökugjald er krónur 500.
Núverandi héraðsmeistari HSÞ í skák er Rúnar Ísleifsson, Skákfélaginu Goðanum.




