Páskamót Goðans
Rúnar Ísleifsson varð Páskameistari Goðans 2011, en páskaskákmót félagsins var haldið í gær, á laugardaginn fyrir páska á Húsavík. Rúnar fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Sigurður Ægisson varð reyndar efstur að vinningum með 6,5 vinninga, en þar sem hann er utanfélagsmaður varð hann að láta sér páskaegg duga sem verðlaun.
Rúnar og Sigurður gerðu jafntefli í innbyrðis viðureign sinni, en Hermann Aðalsteinsson krækti í hálfan vinning gegn Rúnari á meðan Sigurður vann aðrar skákir. Hermann varð svo í þriðja sæti með 4,5 vinninga.
Hlynur Snær Viðarsson varð efstur í yngri flokki með 2,5 vinninga.
Á myndinni eru strákarnir í flokki 16 ára og yngri með verðlaunin sín, sem auðvitað voru páskaegg; Snorri Hallgrímsson, Valur Heiðar Einarsson og Hlynur Snær Viðarsson.
Hægt er að skoða einstök úrslit á heimasíðu Goðans.




