Valur Heiðar héraðsmeistari HSÞ 2011
Héraðsmót HSÞ í skák í flokki 16 ára og yngri fór fram á Laugum í dag. Sjö keppendur mættu til leiks. þrír í eldri flokki og fjórir í yngri flokki. Valur Heiðar Einarsson gerði sér lítið fyrir og vann allar sínar skákir, sex að tölu og hreppti þar með titilinn héraðsmeistari HSÞ í skák 2011 16 ára og yngri. Hlynur Snær Viðarsson varð í öðru sæti með 5 vinninga og Snorri Hallgrímsson varð þriðji með 4 vinninga. Snorri Már Vagnsson vann í flokki 13 ára og yngri með 2,5 vinninga. Eyþór Kári Ingólfsson varð í öðru sæti með 1,5 vinning og Bjarni Jón Kristjánsson varð í þriðja sæti líka með 1,5 vinning. Eyþór og Bjarni háðu auka keppni um annað sætið. Þeir unnu hvor sína hraðskákina og var þá tefldur bráðabani þar sem hvítur hafði 6 mín en svartur var með 5 mín og svörtum dugði jafntefli til sigurs. Eyþór, sem var með hvítt, vann kónginn af Bjarna og þar með skákina og hreppti því annað sætið.
Bjarni Jón Kristjánsson, Snorri Hallgrímsson, Hlynur Snær Viðarsson, Valur Heiðar Einarsson, Eyþór Kári Ingólfsson,
Snorri Már Vagnsson og Ari Ingólfsson fyrir utan Dalakofann á Laugum í dag.
Lokastaðan:
1. Valur Heiðar Einarsson Völsungi 6 af 6
2. Hlynur Snær Viðarsson Völsungi 5
3. Snorri Hallgrímsson Völsungi 4
4. Snorri Már Vagnsson G&A 2,5
5. Eyþór Kári Ingólfsson Einingin 1,5 (+2)
6. Bjarni Jón Kristjánsson Eflingu 1,5 (+1)
7. Ari Ingólfsson Einingin 0,5




