Héraðsmót HSÞ í sundi verður haldið á Laugum laugardaginn 13.október, en þar geta allir tekið þátt sem vilja eftir að hafa verið í sundkennslu í upphafi skólaárs.
Til þingeyskra barna og foreldra þeirra. Sundæfingar á Húsavík í vetur eru: 1. til 4. bekkur: Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15:00 til 16:00 5. bekkur og eldri: Mánudaga, þriðjudaga kl. 18:00 til 20:00, miðvikudaga kl. 06:00 til 07:00 og þrekæfing seinnipartinn, föstudaga kl. 13:00 til 15:00 og laugardaga kl. 08:30 til 10:00. Sundæfingar á Laugum: Þriðjudaga kl. 16:30 til 18:00 og fimmtudaga kl. 16:30-18:00
Sundráð HSÞ hefur komið af stað sundæfingum í nýju sundlauginn á Laugum. Þessar æfingar hófust um síðustu mánaðarmót og var ákveðið að fyrsti mánuðurinn yrði nýliðum að kosnaðarlausu.
Skoðanakönnun vefsíðunnar spyr nú hvort fólk hafi farið í sund í sumar og má segja að niðurstöðurnar séu merkilegar nú þegar 68 hafa svarað. 46% aðspurða svara játandi, 9% neitandi. 46% segjast síðan ekki kunna að synda. Sé könnunin marktæk mætti segja að þetta séu skilaboð til hreyfingarinnar um að halda sundnámskeið, hugsanlega þá fyrir fullorðna, sérstaklega nú þegar ný útisundlaug hefur risið á Laugum.