Könnun: Hefur þú farið í sund í sumar?
Skoðanakönnun vefsíðunnar spyr nú hvort fólk hafi farið í sund í sumar og má segja að niðurstöðurnar séu merkilegar nú þegar 68 hafa svarað. 46% aðspurða svara játandi, 9% neitandi. 46% segjast síðan ekki kunna að synda. Sé könnunin marktæk mætti segja að þetta séu skilaboð til hreyfingarinnar um að halda sundnámskeið, hugsanlega þá fyrir fullorðna, sérstaklega nú þegar ný útisundlaug hefur risið á Laugum.





