Sundæfingar hafa nú farið af stað á vegum HSÞ
Sundráð HSÞ hefur komið af stað sundæfingum í nýju sundlauginn á Laugum. Þessar æfingar hófust um síðustu mánaðarmót og var ákveðið að fyrsti mánuðurinn yrði nýliðum að kosnaðarlausu.
Sundráð HSÞ hefur komið af stað sundæfingum
í nýju sundlauginni á Laugum. Þessar æfingar hófust um síðustu mánaðarmót og var ákveðið að fyrsti mánuðurinn yrði nýliðum að kosnaðarlausu. Þjálfari á þessum æfingum er formaður ráðsins, Árný Björnsdóttir sem við köllum Öddu, og kemur hún frá Húsavík. Sundæfingar á Laugum eru tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum, frá kl. 17:00 - 18:30. Þær eru miðaðar við börn frá 9 ára aldri.
Eins er Völsungur með sundæfingar á Húsavík og eru allir velkomnir þangað að æfa ef það hentar betur. Þar eru æfingar fyrir yngri börnin sem við höfum ekki tök á að bjóða upp á enn sem komið er. Æfingar á vegum Völsungs eru: Fyrir yngri hópinn sem eru börn á aldrinum 6 - 9 ára, á mánudögum og fimmtudögum kl. 14:30 - 15:30. Eins meiga 9 ára börnin æfa á laugardagsmorgnum kl. 8:30 - 10:00. Æfingar fyrir 10 ára og eldri eru svo á mánudögum kl. 19:00 - 21:00 og laugardagsmorgnum kl. 8:30 - 10:00. Krakkarnir í eldri hópnum sem æfa á Húsavík eru svo keyrð hingað fram í Lauga og æfa hérna. Við erum mjög ánægð með það hvernig þessar æfingar fara af stað á vegum HSÞ og bindum miklar vonir við að framhaldið verði jafn gott.
Þó svo að þessar æfingar séu komnar af stað þá er alls ekki of seint að koma og vera með. Því fleiri því meira hægt að gera og því meira gaman. Héraðsmótið sem talað var um að halda síðustu helgina í október, getur því miður ekki orðið þá helgi. Við stefnum hins vegar að því að láta það ekki frestast um of. Ný dagsetning verður auglýst síðar.
Bestu kveðjur.
Fyrir hönd sundráðs HSÞ Anna Gerður.

Styrktaraðilar

Leit