Fréttir
Fréttir
SundæfingarSundæfingar verða á Laugum á þriðjudögum kl. 17:00-18:00 og á fimmtudögum frá 17:00 - 18:30. Þjáfarar eru Snæfríður Njálsdóttir og Sylvía Víðisdóttir frá Húsavík, sem báðar eru nemendur við framhaldsskólann á Laugum og hafa reynslu af þjálfun. Æfingagjöld verða kr. 3500,- á mánuði og verða innheimt mánaðarlega. Héraðsmót í knattspyrnu 12 ára og yngriHéraðsmót í knattspyrnu 12 ára og yngri á vegopnunarhátíðinni Núna fer ég norður!
Héraðsmót HSÞ í knattspyrnu 12 ára og yngri innanhúss verður haldið á Þórshöfn á Langanesi sunnudaginn 7. nóvember 2010.
Þetta mót er nú tekið upp aftur eftir áralangt hlé.
Keppt verður í 5. flokki, 6. flokki og 7. flokki í blönduðum liðum. Leyfilegt er að keppa upp fyrir sig.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi þriðjudaginn 26. október á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 893-5836. Þá skal einnig tilkynnt hvort liðin vilja gistingu.
Þátttökugjald er 1.500 krónur á keppanda. Innifalið í því er gisting í skólahúsnæði, diskótek á laugardagskvöldi, mótsgjald og grill eftir mót. Þátttökugjaldið greiðist í síðasta lagi við upphaf móts.
.
Eins og sjá má er gert ráð fyrir að liðin geti komið á föstudegi eða laugardegi til Þórshafnar þó mótið sé aðeins á sunnudegi.
Um þessa helgi verður haldin vegopnunarhátíðin Núna fer ég norður! á Þórshöfn og ýmislegt um að vera. Síðdegis á föstudag verður klippt á borða á Hófaskarðsvegi þar sem allir eru velkomnir, auk konukvölds og dansleiks á Eyrinni um kvöldið. Á laugardegi verður markaðsdagur í íþróttamiðstöðinni, tónleikar, áðurnefnt diskótek og fleira.
.
Umf. Langnesinga býður ykkur hjartanlega velkomin! Frjálsíþróttaæfingar HSÞ
Æfingar í Íþróttahöllinni á Húsavík: 9 ára og yngri: 10 ára og eldri: Æfingar íþróttahúsinu á Laugum Nýir iðkendur hvattir til að koma og prófa. Frítt fyrir byrjendur í október. Sjáumst sem flest. Glímuæfingar HSÞGlímuæfingar verða í íþróttahúsinu á Laugum í Reykjadal á þriðjudögum kl. 16-17.
Fyrsta æfing verður 5. október. Þjálfarar eru Arngeir Friðriksson, Arngrímur Jónsson og Pétur Þ. Gunnarsson. Æfingarnar eru opnar öllum.
Æfingabúðir í glímu verða á Laugum 2. -3. október undir handleiðslu Péturs Þóris Gunnarssonar og Ólafs Odds Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Glímusambands Íslands. Æfingabúðirnar eru fyrir nemendur í 9.-10. bekk grunnskóla og upp í 20 ára. Æfingabúðirnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu, en þátttakendur þurfa að sjá sér fyrir fæði. Gist verður í Litlulaugaskóla. Skráning fer fram á:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna S. Kristjánsdóttir, formaður HSÞ í síma: 894-4247. KEA styrkir HSÞKEA og HSÞ skrifuðu undir samstarfssamnning á dögunum. Undirskriftin fór fram að Laugum í Reykjadal við sama tækifæri og ný heimasíða sambandsins var opnuð. Samningur er til eins árs og gerir KEA að einum af aðalstyrktaraðilum HSÞ. KEA hefur í gegn um árin verið Héraðssambandinu öflugur bakhjarl og er þessi samningur framhald af fjögurra ára samningi sem KEA og HSÞ undirrituðu í aðdraganda unglingalandsmótsins sem hvaldið var að Laugum 2006. Stjórn HSÞ þakkar KEA stuðninginn. HSÞ opnar nýja og endurbætta heimasíðuHéraðssamband Þingeyinga hefur í dag tekið í notkun nýja og endurbætta heimasíðu. Hún var opnuð við tjörnina á Laugum í Reykjadal. Heimasíðu Héraðssambands Þingeyinga er ætlað að auka upplýsingastreymi til umheimsins um starfsemi HSÞ, aðildarfélög þess og félagsmenn. Einnig innbyrðis á milli þessara aðila. Þar verður einnig að finna upplýsingar um uppbyggingu og skipulag HSÞ ásamt ýmsum hagnýtum atriðum. Heimasíðan á þannig að gera sambandið að sterkari heild, allt frá Bakkafirði vestur á Grenivík. Hún mun auðvelda og styrkja starfið, samfélaginu til heilla. En hvers vegna í tjarnarhólmanum á Laugum? Jú, fyrir hartnær hundrað árum áttu þingeyskir ungmennafélagar hugmyndina um Héraðsskólann á Laugum og varð stofnun hans helsta baráttumál gamla HSÞ. Skólinn var svo byggður árin 1924 - 25 og hóf starfsemi þá um haustið. Allar götur síðan hefur HSÞ átt stóran þátt í uppbyggingu staðarins á Laugum og þar liggja mörg handtök ungmennafélaga. Þannig er saga HSÞ og Lauga samofin.Staðarvalið í hólmanum er einnig tímans tákn, það er hægt að opna heimasíðu hvar sem er! Frjálsar á Laugum sumarið 2010Jæja krakkar. Þá er langþráð stund að renna upp...æfingar utanhúss!! Brói vill hafa æfingarnar á mánudögum og miðvikudögum kl. 19 - 21. Athugið að akstursplanið er ekki rétt. Ég gerði ráð fyrir þriðjudögum og fimmtudögum. Þið fáið nýtt plan við fyrsta tækifæri. Fyrsta æfingin á Laugum verður á annan í hvítasunnu, 24. maí 2010, kl. 19. Verið nú dugleg að mæta og æfið af krafti...fyrsta mótið er eftir þrjá vikur.
Bestu kveðjur, Villa Heimasíða frjálsíþróttakrakka!Af gefnu tilefni minni ég hér með á vefsíðu sem frjálsíþróttakrakkar HSÞ eru með: www.123.is/hsth Þar setjum við inn fréttir, myndir, auglýsingar og aðrar upplýsingar. Kv. Vilborg Unglingalandsmót - skráningarNú er búið að opna fyrir skráningar á Unglingalandsmótið á Sauðárkróki. Keppt verður í frjálsum íþróttum, fótbolta, hestaíþróttum, mótorkrossi, golfi, körfubolta, sundi, skák og glímu. Friðrika Illugadóttir sér um að skrá keppendur HSÞ. Þeir sem hafa hug á því að skella sér á Sauðárkrók og keppa í einhverri af áðurnefndum greinum hafi samband við hana í síðasta lagi sunnudaginn 26. júlí. Hún er með síma 464-3175 & 894-7609 og netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Ekki bíða með skráningu fram á síðustu mínútu. Ef þið eruð ákveðin þá hafið samband sem fyrst. Skráningargjald er kr. 6.000,- á mann og greiðist í síðasta lagi mánudaginn 27. júlí inn á 1110-05-402252, kennitala 620169-4989. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.ulm.is. AKSTURSSJÓÐUR HSÞStjórn aksturssjóðs HSÞ auglýsir eftir umsóknum fyrir tímabilið janúar - maí 2009. Sjóðurinn styrkir ferðir barna á íþróttaæfingar á starfssvæði HSÞ sem nær frá Grenivík og austur á Bakkafjörð. Hér á síðunni má nálgast reglur sjóðsins og eyðublöð sem skilist útfyllt á skrifstofu HSÞ Stóragarði 8 640 Húsavík eða með tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 20. júlí Frjálsíþróttaskólinn - lækkað verð!Velferðasjóður barna úthlutaði skólanum vænum styrk svo þátttökugjaldið hefur verið lækkað um helming. Kr. 10.000,- fyrir kennslu, fæði og húsnæði frá mánudegi til föstudags. Gerist ekki betra. Skráningarfrestur til 15. júní í síma 568-2929 Akstursplan sumar 2009Æfingar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19-21. Brottför frá skólaplani Borgarhólsskóla kl. 18:30 Hafdís með silfurverðlaun á smáþjóðaleikunum.Hafdís Sigurðardóttir HSÞ, tryggði sér silfurverðlaun í 400 metra hlaupi á smáþjóðaleikunum í gær, þegar hún hljóp á 58,39 sek. Hafdís varð í 7. sæti í langstökkskeppninni, stökk 5,46m í annari umferð og hætti síðan keppni til þess að geta keppt í 400 metra hlaupinu. (Tekið af vef Þingeyjarsveitar 123.is/641) Æfingar á Húsavík í sumarSelmdís verður með æfingar fyrir 9 ára og yngri á miðvikudögum kl. 17-18. Auglýsing frá UMFÍSmellið á "Tenglar" hér til vinstri, og svo "frjálsar". Þá finnið þið "Frjálsíþróttaskóli UMFÍ 2009" og þar er auglýsing um skólann. Æfingamót á Laugum kl. 18, fimmtud. 28. maíUpplýsingar um greinar koma vonandi sem fyrst inn á www.fri.is/motaforrit. Sennilega kúla, sleggja og spjót í aldursflokkum og langstökk, hástökk, 60 m hlaup og 100 m hlaup í karla og kvennaflokkum. Sjáumst vonandi sem flest :-). Brói og ráðið. Akstur á æfingar á Laugum sumar 2009Æfingar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19-21. Brottför frá skólaplani Borgarhólsskóla kl. 18:30 Héraðsmóti barna og unglinga 2009 lokiðMótið tókst með ágætum. Skráðir keppendur frá aðildarfélögum HSÞ voru 67 og einnig komu 24 keppendur frá UFA, UMSE og USAH Frjálsar í febrúar.Eins og þeir vita sem eitthvað fylgjast með frjálsíþróttaiðkan þá eru janúar og febrúar þeir mánuðir sem innanhúss tímabilið stendur sem hæst Héraðsmóti HSÞ frestað!!!Vegna slæmrar veðurspár hefur Frjálsíþróttaráð HSÞ ákveðið að fresta mótinu sem átti að vera 14. mars n.k. Ný dagsetning auglýst síðar. (Það verður ekki helgina 21.-22. mars). Héraðsmót barna og unglinga 2009Héraðsmót HSÞ í frjálsum íþróttum fer fram 14. mars n.k. í Íþróttahöllinni á Húsavík. Mótið hefst kl. 12:30 Aksturssjóður HSÞ.Við ítrekum að umsóknarfrestur í Aksturssjóð HSÞ fyrir tímabilið sept-des 2008 er til 10. mars næstkomandi. Reglugerð og umsóknareyðublað fyrir Aksturssjóðinn er að finna hér til vinstri undir liðnum Reglugerðir > Aksturssjóður sem og neðan við fréttirnar á forsíðunni Ágætlega gekk á MÍ 11 til 14 ára.Níu keppendur frá HSÞ voru um síðustu helgi á Meistaramóti Íslands 11 til 14 ára í frjálsum íþróttum. Eins og þeirra er von og vísa stóðu þau sig með prýði MÍ 11-14 ára, 28/2-1/3 2009Nú styttist í Meistaramót 11-14 ára krakka í Laugardalshöll. Við brunum suður á föstudag, í einkabílum. Kostnaður kr. 700 greiðist til Rikku. Hún sér um að kaupa nesti til að hafa með í höllina. Munið eftir keppnisgöllum og skómog góða skapinu. Áfram HSÞ!!! Bingó ! Bingó! Bingó!Frjálsíþróttadeild HSÞ verður með Bingó í sal Borgarhólsskóla sunnudaginn 8. feb. n.k. kl.14.00. Bingóspjaldið er á kr. 500 . Í hléi verða seldar veitingar: Kaffi kr. 100 , Svali kr. 100, Súkkulaðistykki kr. 100. Margir góðir vinningar í boði. Vonumst til að sjá sem flesta. Þinggerð 2008Þinggerð framhaldsstofnþings Héraðssambands Þingeyinga, sem haldið var í Skjólbrekku í Mývatnssveit 12. apríl 2008, er nú aðgengileg hér á vefnum. Þingggerðina má nálgast á forsíðu en einnig hér: Þinggerð 2008 MÍ 15-22 ára lokiðÞar voru 7 keppendur frá HSÞ: Aðalbjörg, Friðbjörn, Hafdís, Hildur Ásta, Hlöðver, Nanna og Selmdís. Hafdís sigraði í öllum sínum greinum: 60 m, 200 m, 400 m og langstökki. Hlöðver vann 60 m, var annar í langstökki og þriðji í 200 m. Glæsilegt! Til hamingju!HSÞ fékk 39 stig og endaði í 11. sæti. Frekari úrslit má sjá á mótaforriti FRÍ: mot.fri.is Æfingagjöld 200910 ára og yngri hjá Selmdísi: kr. 2000 á mánuði. Aðrir kr. 3500 á mánuði. Sendir verða út greiðsluseðlar þrisvar á ári. Þeir sem vilja hafa annan háttinn á sendi upplýsingar á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Systkinaafsláttur: 2. barn 25%, 3. barn 50%, fjórða barn frítt. Frjálsíþróttaráð HSÞ. MÍ 15-22 áraBrói og Heiða fara með 6 keppendur á bílnum hans Bróa. Brottför kl. 14:30 frá Dalakofanum. Kostnaður: kr. 5000 (fargjald), kr. 3500 (gisting) leggist inn á 1110-05-400575,kt:620169-4989 áður en lagt er af stað. Borgið Heiðu kr. 1500, hún kaupir vallarnesti og morgunmat. Munið eftir nesti fyrir suðurleið, peningum fyrir mat á norðurleið, rúmfötum o.þ.h. Svo er alltaf gott að fá heimabakað, ef einhver hefur tækifæri til að útbúa það. Gangi ykkur vel :-). Frjálsíþróttaráð HSÞ Ferðir barna og unglinga á íþróttaæfingar styrktarBörnum ekið tæplega 60 þúsund kílómetra til æfinga hjá Héraðssambandi Þingeyinga á síðasta ári. Samfélagssjóður Alcoa er stærsti stuðningsaðili aksturssjóðs HSÞ Til sölu eða gefins.Það eru örugglega til, á heimilum þeirra sem æft hafa frjálsar, HSÞ-keppnisgallar, gaddaskór ofl. sem krakkarnir eru hættir að nota. Ef þið viljið selja það eða gefa sendið upplýsingar á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og við komum því á síðuna. Það sama gildir um þá sem óska eftir þessum hlutum. Frjálsíþróttaráð HSÞ Stórmóti ÍR lokiðÞá er þessari ferð lokið. Hún gekk í alla staði mjög vel. Takk fyrir samveruna, krakkar og Brói. Þið eruð mögnuð. Villa Sverris Stórmót ÍRRútan fer frá skólaplani Borgarhólsskóla kl. 14 föstud. 16.jan., verður við Einarsstaði í Reykjadal kl. 14:30. Muna eftir rúmfötum (ekki sæng og kodda), sundfötum, keppnisfötum o.þ.h., nesti fyrir suðurleið, pening fyrir mat á norðurleið, góða skapinu ofl.ofl. :-) Stórmót ÍR 17.-18. janúar 2009Rúta kr. 7.000, gisting kr. 3.100 (saman í umslagi með nafni keppanda). 1.000 kr. fyrir morgunmat og vallarnesti. 1.500 kr. fyrir mat á heimleið og nammi á laugardagskvöld. Þeir keppendur sem fara á eigin vegum greiði kr. 1.000 í þjálfarakostnað og vallarnesti. Keppendur nesti sig fyrir suðurleið. Frjálsíþróttaráð HSÞ greiðir keppnisgjöldin. Brottför kl. 14 frá skólaplani Borgarhólsskóla, heimkoma seint á sunnudagskvöld. Stórmót ÍREkkert framboð hefur borist í fararstjóraembætti svo Villa Sverris og Brói fara ein með keppendum HSÞ. Tvær gistinætur á farfuglaheimilinu kosta 3.100,-. Það væri vel þegið ef einhverjir myndu baka handa okkur eitthvað hentugt í vallarnesti. Rútugjaldið er ekki alveg komið á hreint. Nánari uppl. síðar. Frjálsíþróttaráð HSÞ Stórmót ÍR 17.-18. janúarGott væri að fá að vita sem fyrst hverjir ætla að fara á mótið, hverjir ætla með rútunni og hverjir ætla að gista í farfuglaheimilinu. Einnig er laus fararstjórastaða ef einhver hefur áhuga. Kveðja, Frjálsíþróttaráð HSÞ Nýtt netfang Frjálsíþróttaráðs HSÞ
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Gleðilegt nýár og takk fyrir það gamla!Næsta mót er Stórmót ÍR í Laugardalshöllinni 17. og 18. janúar 09. Látið Bróa vita sem fyrst hvort þið ætlið að fara. Gleðileg jól!Frjálsíþróttaráð HSÞ sendir iðkendum og fjölskyldum þeirra, sem og öllum velunnurum, bestu óskir um gleði og frið á jólum. Hittumst jákvæð og hress á nýju ári. Nóvembermóti HSÞ 2008 lokiðLaugardaginn 15. nóvember fór fram, í Íþróttahöllinni á Húsavík, Nóvembermót HSÞ í frjálsum íþróttum. |






