Lög & reglugerðir
Afreksmannasjóður
Afreksmannasjóður HSÞ
Stjórn sjóðsins skipa:
Ingólfur Freysson formaður
Arngrímur Geirsson
Þórhallur Bragason
Reglugerð Sjóðsins
1.grein
Sjóðurinn heitir Afreksmannasjóður HSÞ og er stofnaður á ársþing HSÞ 10. apríl 1994 með stofnframlagi kr. 150.000 sem kemur úr sjóði HSÞ.
2. grein
Tilgangur sjóðsins er að styrkja afreksfólk, einstaklinga eða hópa innan HSÞ sem náð hafa framúrskarandi árangri í íþrótt sinni.
3. grein
Eingöngu félaga innan aðildarfélaga HSÞ geta sótt um styrki úr sjóðnum.
4. grein
Stjórn sjóðsins annast alla úthlutun úr sjóðnum. Hún er skipuð þremur mönnum sem kosnir eru á ársþingi HSÞ til þriggja ára, sitt árið hver. Stjórnin skiptir með sér verkum. Þá skal á hverju ársþingi HSÞ kjósa einn varamann sem stjórninni er heimilt að kalla til ef fjallað er um mál sem tengjast einhverjum stjórnarmönnum persónulega. Skal þá sá stjórnarmaður víkja fundi.
5. grein
Vörslu sjóðins og reikningshald annast gjaldkeri HSÞ.
6. grein
Tekjur sjóðsins eru:
a) 5% af óskiptum lottótekjum HSÞ.
b) 5% af skatti frá félögum
c) Frjáls framlög og söfunarfé.
d) Vaxtatekjur.
7. grein
Um styrkveitingar:
1.) Veita má styrk úr sjóðnum án umsóknar vegna mjög góðrar frammistöðu í eftirtöldum alþjóðamótum:
a) Heimsmeistaramótum
b) Evrópumeistaramótum
c) Norðurlandameistaramótum
d) Ólympíuleikum
2.) Heimilt er að veita styrk úr sjóðnum ef viðkomandi hefur verið valinn í landslið.
3.) Ennfremur er heimilt að veita styrk til þeirra sem standa framarlega í sinni grein miðað við styrkleikaflokkun sérsambanda (sé hún til).
4.) Einnig getur sjóðsstjórn veitt styrki til einstaklinga eða hópa þó ekki liggi fyrir skrifleg umsókn viðkomandi, telji hún það samrýmast reglum sjóðsins.
8. grein
Styrkupphæðir taka mið af fjármagnsgetu sjóðsins hverju sinni.
9. grein
Til að hljóta styrk geta íþróttamenn aðrir en um getur í 7. grein sótt skriflega um til sjóðsstjórnar. Í umsókn skal gera grein fyrir ástæðum hennar. Úthlutun úr sjóðnum fer fram í mars ár hvert og þurfa umsóknir að berast fyrir 1. þess mánaðar, undirritaðar umsækjanda og formanni viðkomandi aðildarfélags. Sjóðsstjórn er þó heimilt að bregða útaf með þessa dagsetningu ef sérstaklega stendur á.




