Lög & reglugerðir
Aksturssjóður
Aksturssjóður HSÞ
Um sjóðinn:
1. Aksturssjóður HSÞ er stofnaður að frumkvæði HSÞ og er í fyrstu tilraunaverkefni til tveggja ára. Fjárhagslegir samstarfsaðilar eru sveitarfélög á norðausturlandi (starfssvæði HSÞ), fjárlaganefnd alþingis og Samfélagssjóður Alcoa. Ennfremur aðrir aðilar sem leitað verður til og leggja góðu og metnaðarfullu samfélagsverkefni lið.
2. Meginmarkmið sjóðsins er að veita ferðastyrki vegna þátttöku barna og unglinga, 18 ára og yngri, í íþróttum eða öðru félags- og æskulýðsstarfi. Með þessu er hvatt til virkrar og aukinnar þátttöku þessa markhóps í uppbyggjandi og þroskandi leik og starfi.
3. Félagssvæði HSÞ er stórt, dreifbýlt og vegalengdirnar tiltölulega miklar þegar horft er til heildarinnar og aðstæðna. Með aksturssjóðnum er leitast við að gefa öllum börnum og unglingum aukin tækifæri til æfinga og þátttöku í skipulögðu félags- og æskulýðsstarfi.
4. Eins og nafnið bendir til er sjóðurinn hugsaður sem einn mikilvægur þáttur í samfélagsgerð svæðisins. Í ljósi breytinga á stjórnsýslu og félagslegri umgjörð er mikilvægt að vinna að leiðum er stuðla að samheldni, félagslegri virkni og jákvæðri samfélagslegri þróun eftir því sem aðstæður leyfa.
5. Með sjóðnum er verið að leggja lóð á vogarskálar betri nýtingar mannvirkja, öflugra félagsstarfs og samheldni og samtakamætti á starfssvæði HSÞ.
6. Megináherslan er annars vegar á íþróttaæfingar innan héraðs undir stjórn þjálfara eða leiðbeinanda, og hins vegar á skipulagt félags- og æskulýðsstarfs.
7. Tekjur sjóðsins á hverjum tíma mynda þann fjárhagsramma sem stjórn sjóðsins hefur til úthlutunnar á hverju ári.
8. Stjórn Akstursjóðs HSÞ skipa 3 einstaklingar sem skipaðir eru af stjórn HSÞ.
9. Þekkingarsetur Þingeyinga verður fengið til að framkvæma könnun sem m.a. tekur á þessum samfélagsþáttum sem sjóðurinn horfir til. Þetta verður um leið liður í árangursmati sjóðsins.
Áherslur, forsendur og skilyrði
1. Tilgangur Aksturssjóðs HSÞ er að greiða beinan ferðakostnað vegna þátttöku barna og unglinga 18 ára og yngri á félagssvæði HSÞ í skipulögðum íþróttaæfingum, félags- og æskulýðsstarfi.
2. Hægt verður að sækja um styrk frá sjóðnum vegna ferðakostnaðar og verður umsóknarferli auglýst 3 sinnum á ári. Umsóknir eiga að berast á þar til gerðum eyðublöðum sem aðgengileg verða á vef HSÞ.
3. Stjórn sjóðsins setur nánari úthlutunarviðmið en gengið er út frá ákveðnum einingatölum fyrir hvern ekinn kílómetra sem m.a. miðast við fjölda einstaklinga í bíl. Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða verður reynsla að leiða í ljós hugsanlegar breytingar á viðmiðum á síðari tímabilum.
4. Horft skal til þess að ferðir séu samnýttar eftir því sem kostur er og aðstæður leyfa.
5. Til að stuðningur fáist þarf akstur til og frá heimili að æfingastað að vera út fyrir félagssvæði þess heimafélags. Frávik frá þessu geta verið vegna sérstakra aðstæðna tíðni ferða o.fl.
6. Áhersla er lögð á þátttöku sjóðsins í ferðum vegna íþróttaæfinga eða viðburða innan félagssvæðis HSÞ.
7. Einnig er hægt að sækja um þátttöku sjóðsins vegna æfinga utan héraðs enda sé þá um að ræða betri aðstöðu en innan héraðs eða annað sem líta verður á sem augljósan kost eða líklegt til árangurs með einhverjum hætti.
8. Ekki er gert ráð fyrir styrkjum vegna sérstakra æfingabúða utan héraðs.
9. Umsækjendur geta verið foreldrar eða forráðamenn, hópur foreldra eða aðildarfélög HSÞ. Ennfremur félög, skipulagðir hópar eða skilgreind verkefni sem horfa til þátttöku barna og unglinga í félags- eða æskulýðsstarfi.




