Lög & reglugerðir
Fræðslusjóður
Fræðslusjóður HSÞ
1. grein
Sjóðurinn heitir Fræðslusjóður HSÞ og er stofnaður á 92. ársþingi HSÞ, 2. apríl 2005, með stofnframlagi kr. 150.000.- sem kemur úr aðalsjóði HSÞ. Verði afgangur á rekstrarári af framlagi HSÞ rennur hann aftur til aðalsjóðs.
2. grein
Tilgangur sjóðsins er að auka menntun og þekkingu félaga innan HSÞ á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi, með því að sækja námskeið, fundi og ráðstefnur ef stjórn sjóðsins álítur það íþrótta- og félagslífi í héraði til framdráttar.
3. grein
Eingöngu félagar innan aðildarfélaga HSÞ eiga möguleika á styrk úr sjóðnum.
4. grein
Stjórn sjóðsins annast alla úthlutun úr sjóðnum. Hún er skipuð þremur mönnum sem kosnir eru á ársþingi HSÞ til þriggja ára, sitt árið hver. Stjórnin skiptir með sér verkum. Þá skal á hverju ársþingi HSÞ kjósa einn varamann sem stjórninni er heimilt að kalla til ef fjallað er um mál sem tengjast einhverjum stjórnarmönnum persónulega. Skal þá sá stjórnarmaður víkja af fundi.
5. grein
Vörslu sjóðsins og reiknishald annast gjaldkeri HSÞ.
6. grein
Tekjur sjóðsins eru:
a. Ársþing HSÞ ákveði framlag til sjóðsins ár hvert að lágmarki kr. 100.000.-
b. Frjáls framlög og söfnunarfé.
c. Vaxtartekjur.
7. grein
Öll aðildarfélög innan HSÞ eiga rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum.
a. Styrkupphæðir taka mið af fjármagnsgetu sjóðsins hverju sinni.
b. Úthlutun úr sjóðnum fer fram 3 sinnum á ári. Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. apríl, 15. ágúst og 15. desember til skrifstofu HSÞ, undirritaðar af formanni viðkomandi aðildarfélags.
c. Styrkupphæð nemur allt að helming námskeiðsgjalds hverju sinni.
d. Aðrar úthlutanir fara eftir ákvörðun stjórnar sjóðsins hverju sinni.
Ákvæði til bráðabirgðar: Stjórn HSÞ er falið að skipa sjóðsstjórn til eins árs á fyrsta stjórnarfundi eftir þing.
92. ársþing HSÞ 2. apríl 2005




