Lög & reglugerðir
Frjálsar íþróttir
Héraðsmót barna og unglinga innanhúss
Héraðsmót barna og unglinga innanhúss
Héraðsmót HSÞ í frjálsum íþróttum fyrir börn og unglinga innanhúss, skal haldið árlega og fara fram á einum degi á tímabilinu janúar til apríl.
2. grein
Keppt skal í sjö aldursflokkum drengja og stúlkna: 9 ára og yngri, 10 og 11 ára, 12 ára, 13 ára, 14 ára, 15 og 16 ára og 17 og 18 ára.
3. grein
Keppt skal í eftirtöldum greinum:
9 ára og yngri: Spretthlaup (40m.), langstökki án atr.
10 og 11 ára: Spretthlaup (40m.), 600 m hlaupi, langstökki án atr þrístökki án atr. hástökki með atr. og kúluvarpi.
12 til 14 ára: Spretthlaup (40m.), 800 m hlaupi, langstökki án atr þrístökki án atr. hástökki með atr. og kúluvarpi.
15 til 18 ára: Spretthlaup (40m.), 800 m hlaupi, langstökki án atr þrístökki án atr. hástökki með atr. hástökki án atr. og kúluvarpi.
4. grein
Þátttökutilkynningar skulu berast mótsstjórn samkvæmt gildandi reglum.
5. grein
Keppni milli félaga skal vera stigakeppni og hljóta sex fyrstu menn í hverri grein stig, þ.e. 6-5-4-3-2-1 stig. Það félag sem flest stig hlýtur er Héraðsmeistari HSÞ í frjálsum íþróttum barna og unglinga innanhúss og fær að launum bikar til varðveislu.
6. grein
Keppni skal að öðru leyti framkvæmd samkvæmt reglum FRÍ.




