Lög & reglugerðir
Frjálsar íþróttir
Héraðsmót barna og unglinga utanhúss
Héraðsmót barna og unglinga utanhúss
1. grein:
Héraðsmót HSÞ í frjálsum íþróttum fyrir börn og unglinga utanhúss skal haldið árlega og fara fram á tveimur dögum á tímabilinu júní til ágúst.
2. grein:
Keppt skal í sex aldursflokkum drengja og stúlkna: 8 ára og yngri, 9 – 10 ára , 11 – 12 ára, 13 – 14 ára, 15 – 16 ára og 17 – 18 ára.
3. grein:
Keppt skal í eftirtöldum greinum:
Fyrri dagur:
8 ára og yngri: 60 m hlaup, boltakast
9 – 10 ára: 60 m hlaup, hástökk, langstökk, boltakast
11 – 12 ára: 60 m hlaup, 400 m hlaup, kúluvarp, langstökk
13 – 14 ára: 100 m hlaup, 300 m grindahlaup, 400 m hlaup, langstökk, kúluvarp
15 – 18 ára: 100 m hlaup, 300 m grindahlaup, 400 m hlaup, 1500 m hlaup, hástökk, kringlukast, spjótkast, þrístökk
Seinni dagur:
8 ára og yngri: langstökk, 600 m hlaup
9 – 10 ára: 600 m hlaup, spjótkast, 4 x 100 m hlaup
11 – 12 ára: 60 m grindahlaup, 800 m hlaup, spjótkast, hástökk, 4 x 100 m hlaup
13 – 14 ára: 80 m grindahlaup, 800 m hlaup, spjótkast, hástökk, 4 x 100 m hlaup
15 – 16 ára: 80 / 100 m grindahlaup, 200 m hlaup, 800 m hlaup, kúluvarp, sleggjukast, stangarstökk, langstökk, 4 x 100 m hlaup
17 – 18 ára: 100 / 110 m grindahlaup, 200 m hlaup, 800 m hlaup, kúluvarp, sleggjukast, stangarstökk, langstökk, 4 x 100 m hlaup
Mótstjórn er heimilt að fella niður grein/greinar ef gildar ástæður liggja fyrir svo sem vegna keppnisaðstæðna.
4. grein:
Hverju félagi er heimilt að senda ótakmarkaðan fjölda þátttakenda í hverja grein. Hverjum þátttakenda er heimilt að keppa í 6 greinum samtals auk boðhlaupa.
5. grein:
Þátttökutilkynningar skulu berast mótsstjórn samkvæmt gildandi reglum.
6. grein:
Keppni milli félaga innan HSÞ skal vera stigakeppni og hljóta sex fyrstu menn í hverri grein stig, þ.e. 6-5-4-3-2-1 stig. Það félag sem flest stig hlýtur er Héraðsmeistari HSÞ í frjálsum íþróttum barna og unglinga utanhúss og fær að launum bikar til varðveislu.
7. grein:
Einnig skulu veittir farandbikarar þeim dreng og stúlku sem vinnur stigahæsta afrek móstins samkvæmt stigatöflu í frjálsum íþróttum barna og unglinga gefini út af FRÍ.
8. grein:
Keppni skal að öðru leyti framkvæmd samkvæmt reglum FRÍ.
Samþykkt á ársþingi HSÞ á Þórshöfn 2. maí 2009




