Lög & reglugerðir
Sund
Héraðsmót HSÞ í sundi
Héraðsmót HSÞ í sundi
Gildir frá 3. apríl 2004
1. gr.
Héraðsmót HSÞ í sundi skal haldið ár hvert á tímabilinu september til október. Framkvæmdaraðili er sundráð HSÞ.
2. gr.
Mótið skal haldið í 25 metra laug, og aðeins þar sem framfylgt verður ákvæðum og reglum SSÍ um sundmót.
3. gr.
Auglýsa skal mótið með eins mánaðar fyrirvara. Framkvæmdaraðili ákveður skráningarfrest og skráningargjald ef eitthvað er.
4. gr.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi.
1. gr. 50 m. bringusund 10 ára og yngri, hnátur
2. gr. 50 m. bringusund 10 ára og yngri, hnokkar
3. gr. 50 m. baksund 11 og 12 ára stelpur
4. gr. 50 m. baksund 11 og 12 ára strákar
5. gr. 100 m. skriðsund 13 og 14 ára telpur
6. gr. 25 m. frjáls aðferð hnátur 8 ára og yngri
7. gr. 25 m. frjáls aðferð hnokkar 8 ára og yngri
8. gr. 100 m. skriðsund 13 og 14 ára piltar
9. gr. 50 m. flugsund 15 til 17 ára stúlkur
10. gr. 50 m. flugsund 15 til 17 ára sveinar
11. gr. 100 m. bringusund 18 ára og eldri konur
12. gr. 100 m. bringusund 18 ára og eldri karlar
13. gr. 100 m. bringusund 11 og 12 ára stelpur
14. gr. 100 m. bringusund 11 og 12 ára strákar
15. gr. 50 m. baksund 13 og 14 ára telpur
16. gr. 50 m. baksund 13 og 14 ára piltar
17. gr. 100 m. bringusund 15 til 17 ára stúlkur
18. gr. 100 m. bringusund 15 til 17 ára sveinar
19. gr. 100 m. skriðsund 18 ára og eldri konur
20. gr. 100 m. skriðsund 18 ára og eldri karlar
21. gr. 50 m. skriðsund 10 ára og yngri hnátur
22. gr. 50 m. skriðsund 10 ára og yngri hnokkar
23. gr. 50 m. skriðsund 11 og 12 ára stelpur
24. gr. 50 m. skriðsund 11og 12 ára strákar
25. gr. 100 m. bringusund 13 og 14 ára telpur
26. gr. 100 m. bringusund 13 og 14 ára piltar
27. gr. 100 m. baksund 18 ára og eldri konur
28. gr. 100 m. baksund 18 ára og eldri karlar
29. gr. 100 m. baksund 15 til 17 ára stúlkur
30. gr. 100 m. baksund 15 til 17 ára sveinar
31. gr. 4 x 50 m. frjáls aðferð 10 ára og yngri hnátur
32. gr. 4 x 50 m. frjáls aðferð 10 ára og yngri hnokkar
33. gr. 50 m. flugsund 13 og 14 ára telpur
34. gr. 50 m. flugsund 13 og 14 ára piltar
35. gr. 100 m. skriðsund 15 til 17 ára stúlkur
36. gr. 100 m. skriðsund 15 til 17 ára sveinar
37. gr. 100 m. flugsund 18 ára og eldri konur
38. gr. 100 m. flugsund 18 ára og eldri karlar
39. gr. 4 x 50 m. skriðsund 11 og 12 ára stelpur
40. gr. 4 x 50 m. skriðsund 11 og 12 ára strákar
41. gr. 4 x 50 m. skriðsund 13 og 14 ára telpur
42. gr 4 x 50 m. skriðsund 13 og 14 ára piltar
43. gr. 4 x 50 m. fjórsund 15 til 17 ára stúlkur
44. gr. 4 x 50 m. fjórsund 15 til 17 ára sveinar
45. gr. 4 x 50 m. fjórsund 18 ára og eldri konur
46. gr. 4 x 50 m. fjórsund 18 ára og eldri karlar
5. gr.
Verðlaun skulu veitt fyrir þrjú efstu sætin í hverri grein, verðlaunapening. Verðlaunabikarar veitast stigahæsta félaginu og stigahæstu einstaklingum kvenna og karla eftir reglum um bikarana hverju sinni.
6. gr.
Hver keppandi keppir í sínum aldursflokki, auk þess er keppanda heimilt að keppa einn aldursflokk upp fyrir sig sé ekki boðið upp á þá grein í hans aldursflokki.
7. gr
Allar greinar í hverjum aldursflokki eru til stiga.
8. gr.
Við niðurröðun í riðla skal farið eftir sannanlegum löglegum tímum á mótum frá tímabilinu frá síðasta Héraðsmóti HSÞ í sundi árið áður og til þess tíma er skráningarfrestur rennur út. Þeir keppendur sem enga tíma eiga skulu teljast lakastir og raðast niður eftir úrdrætti.
Keppendur með bestu tímana skulu synda saman í síðasta riðli, sá með besta tíman á miðbraut (þ.a. 2 – 3 – 1 – 4).
Á skráningarkortum skal taka fram frá hvaða móti besti tímin er (dagsetning).
9. gr.
Skýrslu um mótið skal senda SSÍ innan 30 daga frá því er mótinu lauk, undirrituðum af yfirdómara, yfirtímaverði og mótsstjóra, ásamt úrslitum og skráningarkortum.
10. gr.
Reglugerð þessari má aðeins breyta af sundráði HSÞ og samþykkjast á ársþingi HSÞ árið eftir. Ræður þá einfaldur meirihluti.




